Profhilo Body

Hvað er Profhilo Body

Profilo Body er rakaefni (hýalúrónsýra) sem sprautað er grunnt og þaðan dreifar það sér um húðina. Profhilo Body er sérstaklega þróað fyrir húð á líkama þar sem húðin hefur misst teygjanleika og raka og farin að slappast. Meðferðin er svipuð og hefðbundin profhilo meðferð fyrir andlit en er sérstaklega hugsuð fyrir stærri svæði svo sem upphandleggi, kvið og læri þar sem húð getur verið laus. Efninu er sprautað í ákveðna punkta og svo dreifist efnið undir húð. Mælt er með að taka meðferðina tvisvar sinnum með 30 daga millibili. Viðhaldsmeðferð er svo metin eftir þörfum.

Meðferðinni fylgir bæði krem og plástrar sem ætlað er til stuðnings á milli meðferða.

 

Er eitthvað sem ég þarf að hafa í huga fyrir meðferð?

Allar meðferðir sem þarfnast inngrips geta valdið bólgu og mari. Þar sem sprautað er grunnt í húð eru almennt minni líkur á mari. Komi fram mar þá hverfur það á nokkrum dögum. Hins vegar sjást litlir hnúðar á svæðinu þar sem efninu var sprautað. Þeir hverfa venjulega á nokkrum klukkustundum eða amk innan sólahrings. Það eru nokkur ráð sem þú getur farið eftir til að minnka líkur á mari og verðir fljótari að jafna þig. Ef þú tekur inn ómega-3 fitusýrur, lýsi eða bólgueyðandi lyf þá er gott að gera hlé í viku fyrir meðferð. Áfengi þynnir einnig blóðið og seinkað því að þú jafnir þig. Sama á við um reykingar.

 

Hver er árangur meðferðarinnar?

Hýalúrónsýran sem sprautað er í húðina örvar bandvefsfrumur til að mynda kollgen og elastín. Húðin getur orðið þéttari og stinnari. Eins gefur aukinn raki húðinni meiri fyllingu og hún verður mýkri og jafnari áferð. Það er afar einstaklingsbundið hvenær árangur kemur í ljós og hve lengi hann endist en flestir sjá þéttari húð. Hámarksárangur er að koma fram á um 2-3 mánuði eftir seinni sprautuna og er algengt að árangur haldist í 6-12 mánuði.

 

Hversu mörg skipti þarf ég?

Mælti er með 2 meðferðum með 30 daga milibili og svo einu sinni á 6-12 mánaða fresti til að viðhalda árangri.

 

Hve lengi er ég að jafna mig?

Flestir eru fljótir að jafna sig eftir meðferðina. Fyrst kemur bólga á stungustað sem hverfur fyrsta daginn. Smá mar getur myndast sem jafnar sig á nokkrum dögum.

 

Hvað þarf ég að forðast eftir meðferð?

Mikilvægt er að sleppa líkamsrækt og sundi daginn sem meðferð er framkvæmd. Einnig er gott að forðast heita potta og gufuböð og ekki snerta stungusvæði um 2 klukkustundir eftir meðferð.

Meðferðinni fylgja plástrar og rakakrem sem notað er á milli meðferða. Þetta er hugsað sem stuðningur við húðina.

Bóka tíma