Skip to main content

Rauða dregils meðferðin

Hvað er Rauða dregils meðferð?

Rauða dregils meðferðin, eða dermaboost, hefur slegið í gegn í Svíþjóð. Með örfínum nálum er farið grunnt í húðina og henni gefið gott “boost” með serum sem inniheldur hýalúrón-sýru og fleiri góð næringarefni sérvalin fyrir húðina. Meðferðin eykur raka í húð og kalla fram góðan ljóma ásamt því að draga úr litabreytingum og minnka fínar andlitslínur.

Er eitthvað sem ég þarf að hafa í huga fyrir meðferð?

Ekki þarf að deyfa húðina áður líkt og í dermapen því hér er unnið er í ystu lögum húðarinnar. Ef þú hefur rósroða, bólur (e. acne), sýkingu (t.d. herpes útbrot, bakteríusýkingu eða vörtu) eða sár á meðferðarsvæðinu er mikilvægt að bíða þar til einkenni hafa gengið yfir. Það er í lagi að nota dermapen ef þú hefur sögu um rósroða en hætta er á að einkenni aukist eftir meðferð því örnálarnar geta sett af stað bólguviðbrögð í húðinni. Ef þú hefur bandvefssjúkdóm (t.d. e. scleroderma), dreyrasýki (e. heamophilia) eða grunsamlegar húðbreytingar er ekki ráðlagt að gangast undir þessa meðferð.

Hvenær má ég búast við að sjá árangur?

Árangur eins og aukinn raki og ljómi kemur fram dagana eftir meðferð. Það tekur nokkrar vikur að sjá litabreytingar minnka því ónæmiskerfið hreinsar það burt hægt og rólega.

Hve lengi endist meðferðin?

Aukinn raki og ljómi endist venjulega í nokkra mánuði en jafnari húðlitur getur enst lengur ef þess er gætt að nota sólarvörn og verja sig gagnvart geislum sólarinnar sem eru aðal orsök litabreytinga í húð.

Hversu mörg skipti þarf ég?

Þú getur séð árangur eftir eitt skipti en ráðlagt er að taka fjögur skipti til að ná hámarksárangri. Tvær vikur þurfa að líða á milli meðferða.

Hversu lengi er ég að jafna mig?

Þar sem unnið er grynnra í húðinni en við dermapen þá er húðin fljótari að jafna sig. Þú mátt búast við roða í einn dag eftir meðferð. Það er alltaf hætta á að bólga og mar myndist þó það sé sjaldgæft.

Hvað þarf ég að forðast eftir meðferð?

Fyrstu tvær vikurnar eftir meðferð þarf að forðast sól og ljósabekki. Ef verið er í sól er mikilvægt að nota sólarvörn með SPF 30 í mánuð eftir meðferð. Auk þess er ráðlagt að sleppa líkamsrækt, sundi og gufubaði meðferðardaginn.