Skip to main content

Laser Háreyðing

Hvað er háreyðing?

Um er að ræða bjart ljós sem fer niður í hársekki og eyðileggur þá þannig að hárin hætta að vaxa. Margir raka hárin eða fara reglulega í vax sem getur valdið því að hárin verða grófari og jafnvel inngróin. Eftir háreyðingu með laser verða hárin fínlegri, þau hætta að vaxa og inngróin hár hætta að myndast. Mikilvægt er að raka hárin kvöldið fyrir meðferð – nema fyrir háreyðingu í andliti hjá konum. Forðast skal að nota vax til háreyðingar á milli meðferða.

Hver er árangurinn?

Oftast sést árangur fljótlega eftir fyrstu meðferð. Það hægir á hárvexti, hárum fækkar og þau verða fínlegri. Því grófari og dekkri sem hárin eru og húðin ljósari, því fyrr sést venjulega árangur. Laserháreyðing er varanleg en flestir koma árlega til að halda henni við.

Hvað þarf ég mörg skipti?

Það er einstaklingsbundið hve mörg skipti þarf og fer oft eftir húðlit og hárum. Algengast er að taka sex til tíu skipti.

Hvað er ég lengi að jafna mig?

Háreyðing er yfirleitt sársaukalaus meðferð. Laserinn veldur hita í húð en í meðferðinni er notuð kæling sem dregur úr óþægindum. Eftir meðferð getur myndast vægur roði sem gengur venjulega til baka á einum sólarhring. Ef hiti er í húðinni getur hjálpað að bera á Aloe Vera gel.

Einstaka sinnum koma fram ofnæmisviðbrögð með kláða og útbrotum, sem ganga yfir á nokkrum dögum. Þá gildir að taka inn ofnæmislyf eins sem fást án lyfseðils í apótekum og kæla eftir þörfum. Mikilvægt er að hafa alveg hreina húð fyrir meðferðina, fara í sturtu áður og gæta þess að bera ENGIN krem á svæðið.

ATH mikilvægt er að mæta árlega í háreyðingu eftir að meðferð lýkur til að viðhalda árangri.