Skip to main content

Laser Rósroði

Hvernig fer meðferðin fram?

Um er að ræða ljós með bylgjulengd sem brýtur niður litarefni og háræðar í húðinni. Ónæmiskerfið sér síðan um að eyða þeim. Oft fylgir meðferðinni væg hitatilfinning.

Hvenær má búast við árangri?

Oftast sést árangur eftir eitt skipti. Það er einstaklingsbundið hversu mörg skipti þarf til að ná góðum árangri en í flestum tilfellum er miðað við tvö til fjögur skipti á tveggja til fjögurra vikna fresti.

Hve lengi endist meðferðin?

Ekki er hægt að lækna rósroða en með lasermeðferð er hægt að minnka roða í húð og háræðaslit. Það er einstaklingsbundið hve lengi meðferðin endist.

Hvað er ég lengi að jafna mig?

Oftast er vægur roði á húð til staðar í um sólarhring eftir meðferð og er þá mikilvægt að bera græðandi krem á húðina.

Hvað þarf ég að forðast eftir meðferð?

Gott er að sleppa líkamsrækt og sundi daginn sem farið er í meðferðina og forðast sól fyrst á eftir. Ef verið er í sól er mikilvægt að nota sólarvörn með SPF 30.