Skip to main content
Blog

FRÁBÆRAR LEIÐIR TIL AÐ HALDA HÚÐINNI HEILBRIGÐRI

By 31.08.2020mars 18th, 2022No Comments

Frábærar leiðir til að halda húðinni heilbrigðri

„Það er stundum svo kalt inni hjá mér að ég er ekki viss um að fingurnir á lyklaborðinu séu mínir því ég hef næstum enga tilfinningu í þeim. Og sem verra er, húðin á handarbökunum skreppur saman eins og þurrkuð sveskja — ef sveskja getur verið náhvít á litinn. Allt þetta er tilkomið vegna þess að æðakerfið ákvað að halda hita á „mikilvægari“ líffærum. Hvenær ákvað skaparinn að það væri mikilvægara að halda hita á nýrunum en húðinni? Var þetta kannski stríðni sem gleymdist að leiðrétta? Kona hefur hendurnar fyrir framan augun liðlang-an daginn — ekki nýrun,“

Að öllu gamni slepptu fór ég að skoða fingravettlinga til að nota þegar ég vinn við tölvuna — innandyra í Kaliforníu! Því ekki þýðir að hamra hraðar eða fastar á lyklaborðið. Nýrun gefa sig ekki — hendurnar skulu ekki fá dropa af blóði og hita.

En kona er ekki þekkt fyrir að gefast auðveldlega upp svo hún tók saman nokkur atriði sem hún getur haft stjórn á til að láta húðinni sinni líða betur:

  1. Verndaðu húðina fyrir kulda og sól. Ef þú stundar útivist verndar þú húðina gegn kulda með því að bera á hana feitt krem, t.d. Eucerin eða Vaselín. Ekki láta blekkjast af sólarleysi því UVA-geislar lenda á húðinni allt árið um kring og geta endurvarpast í snjó og skýjum, sem gerir þá sterkari. UVA eru geislarnir sem fara djúpt niður í húðina og eru taldir valda mestu öldrunaráhrifunum.
  2. Gefðu húðinni nægan raka með því að nota krem sem hentar þér. Ef þú ert með þurra húð gæti hjálpað að taka inn ómega-3 fitusýrur úr sjávarríkinu. Margir finna einnig meiri raka eftir að taka inn kollagen, t.d. unnið úr fiskroði. Beinasoð (t.d. úr af-gangskjúklingi) inniheldur þær aminósýrur sem kollagen eru gerð úr. Og mundu að drekka nóg vatn, sérstaklega ef þú drekkur kaffi eða áfengi sem eru vatnslosandi.
  3. Hugsaðu um að næra líkamann en ekki níðast á honum. Flest sem þú getur borðað beint úr lífríkinu er gott fyrir þig — og þú ert það sem þú borðar! Ef þú ert með bólguvandamál í húðinni eins og bólur eða exem þá getur hjálpað að halda sig við fæði sem inniheldur lágan sykurstuðul og stundum hjálpar að taka inn góða gerla þar sem þarmaflóran er nátengd ónæmiskerfinu sem aftur hefur áhrif á húðina. Ráðfærðu þig við lækni eða einhvern sem þekkir til
  4. Stilltu hringjara til að minna þig á háttatímann þannig að þú gleymir þér ekki og verður svefnvana enn aðra nóttina — ef svo er komið fyrir þér. Regla á svefni er lykil-atriði. Manstu hvernig þér leið þegar þú leist í spegil eftir að hafa sofið bestu nótt lífs þíns? Til dæmis vitum við að djúpsvefninn er mikilvægur fyrir framleiðslu vaxtarhorm-óna sem hjálpa okkur að endurnýja m.a. húðina. Djúpsvefn minnkar með aldrinum svo nýttu hann meðan þú getur!
  5. Hreyfðu þig meira en úr rúminu í bílinn og í skrifstofustólinn. Hreyfing örvar blóðflæði og súrefnisflutning til húðarinnar og myndarnýjar blóðæðar þannig að húðin fær meira súrefni og næringu. Undantekning er húðin á höndunum mínum!