Lýsing
Dustaðu veturinn af þér og uppfærðu húðina fyrir vorvinda og veisluhöld með okkar vinsælu meðferðum lúxushúðslípun og cindarella. Lúxushúðslípun hreinsar húðina, gerir hana áferðarfallegri og meira ljómandi. Í meðferðinni eru eingöngu notaðar húðvörur frá Jan Marini sem eru einstaklega góðar og vandaðar. Í cindarella er notað infrarautt ljós sem þéttir húð og kallar fram fallegan ljóma.