Skip to main content

Slöpp húð

Þegar húðin tapar styrkleika (kollageni) og teygjanleika (elastíni) með aldrinum byrjar hún að síga fyrir tilstilli þyngdaraflsins og verður eins og númeri of stór. Eftir sem við eldumst minnkar einnig rúmmál andlitsvöðvanna ásamt því að andlitsbeinin visna og hrörna. Við getum unnið á móti þessum breytingum með því að gera andlitsæfingar – stækka andlitsvöðvana – en það gefur húðinni auka fyllingu.

Við bjóðum upp á eftirfarandi meðferðir sem styrkja húðina:

Fylliefni er hægt að nota til að gefa meiri fyllingu yfir kinnbeinum og við það lyftist oft einnig húðin á neðri hluta andlits. Einnig er hægt að gefa húðinni raka og fyllingu með því að sprauta fyllingu beint undir húðina. Algengustu svæðin eru kinnar og handarbök.

Dermapen vinnur djúpt í húðinni og örvar myndun kollagens og elastíns, sem gerir húðina þéttari og stinnari.

Laser virkar með því að lyfta og þétta húð á andliti og hálsi, án skurðaðgerðar.

“Ef þú sefur á bakinu þá sléttist úr húðinni og þyngdaraflið dregur húðina að andlitsbeinunum. Að sofa á bakinu getur þannig minnkað ásýnd andlitslína.”

“Bandvefsþræðir tengja húðina við undirliggjandi vöðva og því geta reglulegar æfingar sem styrkja slappa vöðva dregið húðina með sér. Dæmi um það er undirhaka sem hægt er að minnka með því að æfa platysma og aðra vöðva undir hökunni.”