Hvað er Stjörnumeðferðin?
Stjörnumeðferðin er húðmeðferð þar sem notaðar eru sýrur sem ganga undir nafninu PRX-T33. T33 vísar til TCA (trichloroacetic acid) sýru sem lengi hefur verið notuð til þess að meðhöndla litabreytingar, ör og líflausa húð. Í PRX-T33 er auk þess vetnisperoxíð og Kojic sýra sem upphefur virkni TCA og kemur í veg fyrir aukaverkanir sem voru þekktar eftir eldri gerðir af TCA. Sýrurnar eru kröftugar og ná niður í miðlag húðarinnar þar sem þær örva uppbyggingu kollagens ásamt því að stuðla að viðgerð og endurnýjun ysta húðlagsins. Þær eru þeim kostum gæddar að þeim fylgir einungis mjög vægur roði og oftast nær verður lítil sem engin flögnun. PRX-T33 sýrurnar henta vel til þess að meðhöndla húðkvilla eins og slappa húð, fínar línur og hrukkur, þurra húð, litabreytingar, ör og húðslit (e. striae). Vegna fjölbreyttra eiginleika þessarar sýru og lítilla aukaverkana má segja að hún fái húðina til að glóa líkt og stjarna.
Er eitthvað sem ég þarf að huga að fyrir meðferð?
Meðferðin er öflug og ef þú ert með viðkvæma húð gæti verið gott að ráðfæra sig við starfsfólk stofunnar hvort að hún henti þér. Stundum hentar betur að byrja á vægari sýrumeðferð, eins og Jan Marin ávaxtasýrumeðferðinni.
Meðferðin hentar ekki ef:
- þú ert með ofnæmi/viðkvæmni fyrir virkum innihaldsefnum: TCA, vetnisperoxíð eða Kojic sýru.
- húð þín er ofurviðkvæm eða með opið sár eða sýkingu.
Athugið að hætta skal notkun retinóíða tveimur vikum fyrir meðferð og á meðan meðferð stendur.
Ef saga er um herpes-sýkingu, þá getur verið ástæða til að gefa fyrirbyggjandi veirulyf þremur dögum fyrir meðferð. Starfsfólk stofunnar getur ráðlagt þér hvort ástæða sé til þess.
Hversu mörg skipti þarf ég?
Stjörnumeðferðin er öflug meðferð en ávallt er persónubundið hve fljótt árangur kemur fram (fer m.a. eftir ástandi húðar). Hægt er að taka eitt skipti en meðferð samanstendur venjulega af 3 til 5 skiptum með 1 til 2 vikna millibili.
Ef vinna á sérstaklega með þéttni húðarinnar og öramyndun/bættri áferð er mælt með að taka samsetta meðferð af Stjörnumeðferðinni og Dermapen örnálameðferð til skiptis, alls sex meðferðir, þrjár af hvorri.
Hve lengi er ég að jafna mig?
Í meðferðinni er húðin hreinsuð og sýrurnar nuddaðar vel inn í húðina. Mælt er með því að hafa sýrur á andliti í nokkra klukkutíma eða fram á kvöld ef þær þolast vel. Algengt er að finna fyrir vægum sviða og roða. Ef einkenni ágerast má þvo sýrur af með volgu vatni og bera á sig gott rakakrem. Mikilvægt er að halda góðum raka að húðinni þar sem að hún er að endurnýja sig og gæti orðið þurr á meðan hún endurnýjar sig. Eftir u.þ.b. viku má sjá bætta áferð húðar, þéttleika og jafnari lit.
Hvað þarf ég að forðast eftir meðferð?
Mikilvægt er að forðast sólböð, ljósabekki og brúnkukrem í tvær vikur eftir meðferð.
Forðast skal heit böð (>38c) í a.m.k. tvo daga eða þangað til að bólga er horfin.
Bíða skal með líkamsrækt og sund meðferðardaginn.
Notir þú retinóíða (t.d. retinól) skaltu hvíla þig á þeim í tvær vikur fyrir meðferð og meðan á meðferð stendur.