Hvað er skinpen?
Skinpen er örnálameðferð sem vinnur meðal annars á slappri húð, hrukkum, fínum línum og örum eftir bólur. Meðferðin byggir á einnota nálarhaus sem inniheldur 14 nálar. Hún örvar kollagen og elastín og þar með náttúrulega nýmyndun húðar. Hægt er að stilla hve djúpt nálarnar fara, sem ræðst af húðgerð og hvað skal meðhöndla. Fyrir meðferðina er hýalúrónsýrugel borið á húð sem eykur virkni hennar. Strax eftir meðferð færðu kælimaski í nokkrar mínútur, sem flýtir fyrir að húðin jafni sig. Þú færð síðan með þér hýalúrónsýrugel sem notað er fyrsta sólarhringinn og rakakrem sem þú berð á þig næstu daga á eftir eða þar til kremið er búið.
Er eitthvað sem ég þarf að hafa í huga fyrir meðferð?
Ef þú hefur eitthvað af eftirtöldu á meðferðarsvæði er mikilvægt að bíða með meðferð þar til einkenni hafa gengið yfir:
- Rósroði
- Bólur (e. acne)
- Sýking, t.d. herpes útbrot, bakteríusýking eða vara
- Sár
Það er í lagi að koma í Skinpen ef þú hefur sögu um rósroða en hætta er á að einkenni aukist eftir meðferð því skinpen setur af stað bólguviðbrögð í húðinni.
Ekki er ráðlagt að gangast undir Skinpen-meðferðina ef þú hefur eitthvað af eftirfarandi:
- Bandvefssjúkdómur (t.d. e. scleroderma)
- Deyrasýki (e. heamophilia)
- Grunsamlegar húðbreytingar
Þungaðar konur ætti sömuleiðis ekki að gangast undir hana.
Til að draga úr óþægindum í meðferð er í lagi að bera deyfikrem á húð um klukkustund fyrir meðferð. Læknir okkar getur ávísað slíku.
Hvenær má ég búast við að sjá árangur?
Oft er hægt að sjá árangur eftir eitt skipti en hafa ber í huga að endanlegur árangur er að skila sér eftir nokkra mánuði því það tekur húðina tíma að byggja upp kollagen og elastín.
Hve lengi endist meðferðin?
Það fer eftir húðgerð og vandamáli sem verið er að meðhöndla. En oft getur árangur haldist í um 2-3 ár.
Hversu mörg skipti þarf ég?
Yfirleitt er ráðlagt að taka 4 til 6 skipti á 4. vikna fresti. Eftir það er ráðlagt að viðhalda árangri með því að koma 1 til 2 sinnum á ári.
Hve lengi er ég að jafna mig?
Eftir meðferð er húðin rauð og stundum kemur fram smá bólga. Það tekur yfirleitt um 1 til 2 daga að jafna sig. Gott er að bera á sig rakakrem sem þú færð með þér heim og einnig er til sölu góður kælimaski sem dregur úr einkennum. Mikilvægt er að nota ekki farða fyrr en sólarhring eftir meðferð.
Hvað þarf ég að forðast eftir meðferð?
Fyrstu 1 til 2 sólahringana eftir meðferð er best er að forðast líkamsrækt, sund og gufuböð. Þá er ráðlagt að sleppa farða fyrsta sólarhringinn, drekka vel af vatni, sofa með hreint koddaver og ekki snerta andlitið nema með hreina putta. Það þarf að forðast sól og ljósabekki í a.m.k. tvær vikur eftir meðferð og nota sólarvörn SPF 30 eða hærri.