Meðferðir fyrir karlmenn
Karlmenn eru farnir að hugsa betur um húð sína en áður, enda vilja þeir skarta frískri húð ekki síður en konur. Í Húðinni er boðið upp á fjölbreyttar og árangursríkar meðferðir sem henta vel karlmönnum.
Vinsælustu meðferðir fyrir karlmenn: – H-áin 5
Húðslípun
Demantshúðslípun fjarlægir dauðar húðfrumur og örvar endurnýjun ysta húðlags. Meðferðin gefur húðinni aukinn frískleika.
Húðslípun vinnur á:
-
Fínum línum
-
Óhreinni húð
-
Bólum
-
Stækkuðum svitaholum
Húðin verður áferðafallegri, sléttari og frísklegri eftir meðferðina. Hún hentar öllum aldri og öllum húðgerðum, einnig þurri húð og þeim sem hafa vægar bólur.
Til að ná sem bestum árangri er mælt með 3–4 meðferðum á 1-2 vikna fresti.
Í meðferðinni eru eingöngu notaðar gæðavörur frá Mesoestetic eða Jan Marini sem henta öllum húðgerðum.
Húðhreinsun
Húðhreinsun hentar einstaklingum frá 14 ára aldri og er sérstaklega góð fyrir þá sem glíma við fílapensla, bólur og milíakorn.
Meðferðin felur í sér:
-
Djúphreinsun sem hreinsar hársekki og endurnýjar yfirborð húðar
-
Upphitun með infrarauðu ljósi til að mýkja húðvef
-
Hreinsun fílapensla milíakorna og annarra óhreininda
-
Sótthreinsun
-
Róandi og nærandi maska sem dregur úr bólguviðbrögðum
-
Húðvörur eru valdar eftir húðgerð hvers og eins
Hægt er að velja á milli:
-
Húðhreinsunar með Dermalux Flex MD (60 mínútur)
-
Húðhreinsunar án ljóss (45 mínútur)
Í meðferðinni eru notaðar gæðavörur frá Mesoestetic. Dermalux gefur meðferðinni aukið “boost”
Háreyðing með laser
Algengasta svæðið hjá karlmönnum er bakið, en einnig er boðið upp á meðferð á öðrum svæðum.
Laser sendir ljós niður í hársekkina og eyðir þeim, þannig að hár hætta að vaxa. Rakstur og vax getur gert hár grófari og valdið inngrónum hárum, en með laser verða hárin fínlegri og inngróin hár minnka eða hverfa.
Mikilvægt:
-
Raka skal svæðið kvöldið fyrir meðferð
-
Ekki nota vax á milli meðferða
Oft sést árangur fljótt eftir fyrstu meðferð. Hárvöxtur hægir á sér, hárum fækkar og þau verða fínni.
Bestur árangur næst yfirleitt á ljósri húð með dökkum og grófum hárum.
Yfirleitt þarf 6–10 skipti til að ná sem bestum árangri. Meðferðin er varanleg, en margir koma árlega í viðhaldsmeðferð, þar sem húðin er lifandi og heldur áfram að endurnýja sig út ævina.