Ávaxtasýrur Jan Marini

Hvað er róandi og styrkjandi húðmeðferð

Meðferðin hentar vel fyrir viðkvæma, rauða húð sem er í ójafnvægi.

Hún er hugsuð fyrir einstaklinga sem vilja fá einfalda og nærandi meðferð, greiningu á húð og ráðgjöf um hvernig best er að hugsa um hana.

Húðin er metin og hreinsuð. Notuð er Dermalux Flex ljósameðferð og er viðeigandi ljós valið fyrir hvern og einn. Hvort sem þú ert að takast á við bólur, roða eða ójafnvægi þá bætir ljósameðferðin heilbrigði og ljóma húðar. Notuð eru serum, rakakrem maski og sólarvörn og eru vörur valdar fyrir húðgerð hvers og eins. Einnig er gefin ráðgjöf varðandi húðvörur.

Í meðferðinni eru notaðar gæðavörur frá Mesoestetic.  Meðferðin tekur 45 mín.

Er eitthvað sem ég þarf að hafa í huga fyrir meðferð?

Þetta er mjög góð meðferð til að koma húð í jafnvægi og fá ráðgjöf varðandi áframhaldandi meðferðir. Ekki ráðlagt að koma ef sýking eða frunsa er til staðar.

Hver er árangur meðferðarinnar?

Það er afar einstaklingsbundið hvenær árangur kemur í ljós en markmið er að koma húð í betra jafnvægi fyrir áframhaldandi meðferðir.

Hversu mörg skipti þarf ég?

Mælt er með að koma 1-4 skipti en fer eftir ástandi húðar.

Hve lengi er ég að jafna mig?

Þar sem um er að ræða milda meðferð sem er róandi og styrkjandi er húðin fljót að jafna sig. Mögulega er smá roði sem hverfur á einum degi. Meðferðaraðilinn mælir með húðvörum sem henta viðkomandi til að nota í kjölfarið.

Hvað þarf ég að forðast eftir meðferð?

Það er gott að sleppa líkamsrækt og sundi fram á næsta dag eftir meðferðina.

Forðast skal sól og ljósabekki og nota sólarvörn með SPF 30 daglega.