Lúxus Dermapen með ávaxtasýrum og Dermalux flex MD?
Meðferðin vinnur á djúpum og fínum línum, slappri húð, blettum, opinni húð, örum (t.d. eftir unglingabólur) og sliti. Meðferðin byggir á fínum nálum sem vinna djúpt í húðinni og örva náttúrulega endurnýjun hennar, m.a. með því að auka myndun kollagens og elastíns sem leiðir til þess að húðin verður áferðarfallegri og þéttari. Ávaxtasýrur eru bornar á húð sem auka enn árangur. Í meðferðinni eru valin serum sem henta hverjum og einum svo sem hyaluronic acid og retinol. Næringarmaski er hafður á í 15 mín sem græðir og kælir húðina og síðan er notað Dermalux Flex MD sem er öflug ljósameðferð sem örvar húðina. Í lokin svo svo borið græðandi rakakrem. Meðferðin tekur um 75 mín.
Er eitthvað sem ég þarf að hafa í huga fyrir meðferð?
Ef þú ert með rósroða, bólur (e. acne), sýkingu (t.d. herpes útbrot, bakteríusýkingu eða vörtu) eða sár á meðferðarsvæðinu er mikilvægt að bíða þangað til einkenni hafa gengið yfir. Það er í lagi að fara í dermapen ef þú ert með sögu um rósroða en hætta er á að einkenni aukist eftir meðferð þar sem dermapen setur af stað bólguviðbrögð í húðinni. Ef þú hefur bandvefssjúkdóm (t.d. e. scleroderma), dreyrasýki (e. heamophilia) eða grunsamlegar húðbreytingar er ekki ráðlagt að gangast undir dermapen. Þungaðar konur ættu sömuleiðis ekki að gangast undir meðferðina.
Til að minnka óþægindi í meðferð er í lagi að bera deyfikrem á húðina um klukkustund fyrir meðferð.
Hvenær má ég búast við að sjá árangur?
Oft er hægt að sjá árangur eftir eitt skipti en hafa ber í huga að endanlegur árangur er að skila sér smá saman í allt tvö til þrjú ára eftir hverja meðferð.
Hve lengi endist meðferðin?
Það fer eftir húðgerð og vandamáli sem verið er að meðhöndla. Þegar um er að ræða ör, slit og litabreytingar er árangurinn oftast varanlegur. Við fínar og djúpar línur og slappa húð endist meðferðin í flestum tilfellum í þrjú til fjögur ár.
Hversu mörg skipti þarf ég?
Yfirleitt er ráðlagt að taka tvö til sex skipti á sex til átta vikna fresti. Það fer þó allt eftir því hvað verið er að meðhöndla.
Hve lengi er ég að jafna mig?
Það getur tekið þrjá til fjóra daga að jafna sig í eftir dermapen húðmeðferð. Fyrstu tvo til þrjá dagana eftir meðferð eru roði og bólga mest áberandi og stundum getur myndast smá mar. Einnig getur myndast talsverður þurrkur fyrstu dagana á eftir og því er mikilvægt að nota gott rakakrem. Það má nota meik sólarhring eftir meðferð. Kæli- og næringarmaskinn sem notaður er í meðferðinni dregur verulega úr óþægindum og einkennum svo þaðtekur oftast styttri tíma að jafna sig eftir meðferðina.
Hvað þarf ég að forðast eftir meðferð?
Fyrstu tvær vikurnar eftir meðferð þarf að forðast sól og ljósabekki. Ef verið er í sól er mikilvægt að nota sólarvörn með SPF 30 í mánuð eftir meðferð. Auk þess er ráðlagt að sleppa líkamsrækt og sundi í tvo til þrjá daga.