Hvað er Profhilo og PRX T-33 ávaxtasýrur?
Profhilo inniheldur hýalúrónsýrur sem auka raka húðar innan frá og örva framleiðslu kollagens og elastíns. Meðferðin er framkvæmd með litlum stungum á ákveðnum punktum.
PRX T-33 ávaxtasýrur sameinar áhrif ávaxtasýra og djúpa örvun án þess að valda hefðbundinni flögnun. Hún endurnýjar húðina ásamt því að örva kollagen og elastín hennar.
Hver er árangurinn?
Árangur af Profhilo sést yfirleitt smám saman eftir fyrstu meðferð eða um 2-4 vikur. Árangur verður mest áberandi eftir seinni meðferðina.
Hverju má búast við?
Húðin verður rakameiri og fylltri
Aukinn ljómi og heilbrigðari áferð
Dregur úr fínum línum
Frísklegra yfirbragð
PRX gefur hraðari sýnilegan árangur og húðin verður oft ferskari strax eftir fyrstu meðferð. En bestur árangur kemur eftir nokkrar meðferðir í röð.
Hverju má búast við:
Strax meiri ljómi
Sléttari og mýkri húð
Jafnari húðlitur
Minni sýnileiki á fínum línum og litabreytingum
Hversu lengi endist árangurinn?
Profhilo
Árangur endist að jafnaði 6-12 mánuði en getur verið mismunandi eftir húðgerð, aldri og lífsstíl. Mælt er með viðhaldsmeðferð um 1-2 sinnum á ári.
PRX T–33 ávaxtasýrur
Árangurinn getur varað í nokkrar vikur upp í nokkra mánuði og fer það eftir húðástandi og fjölda meðferða.
Yfirleitt er mælt með að koma í 3 skipti og síðan í viðhald eftir þörfum.
Hvað þarf ég mörg skipti?
Profhilo meðferð er framkvæmd tvisvar sinnum til að ná sem bestum árangri á 4 vikna fresti.
PRX T-33 ávaxtasýrur eru gerðar í 3 skipti á um 2ja vikna fresti til að ná hámarksárangri.
Hvað er ég lengi að jafna mig?
Oftast er húðin fljót að jafna sig. Eftir PRX T-33 ávaxtasýrur getur komið fram sviði og roði í húð sem hverfur á um sólarhring. Eftir Profhilo eru flestir fljótir að jafna sig en í sumum tilfellum getur myndast smá bólga og einstaka sinnum mar sem jafnar sig á nokkrum dögum
Hvað þarf ég að forðast eftir meðferð?
Mikilvægt er að sleppa líkamsrækt og sundi daginn sem meðferðin er framkvæmd og forðast að snerta stungusvæðið í 2 klukkustundir eftir meðferðina. Það má bera farða á húðina að kvöldi meðferðardag. Oft eru PRX T-33 ávaxtasýrur hafðar á húðinni í 6 klst eftir meðferðir og eru þær svo þrifnar af með vatni og gott rakakrem og sólarvörn notað daglega.