Description
Við bjóðum upp á 15% tilboð af dásamlegum meðferðum sem fá húðina til að ljóma á stóra deginum.
Jan Marini ávaxtasýrur gefa húðinni góðan raka og vinna á fínum línum, litabreytingum, bólum, fílapenslum og örum. Ávaxtasýrurnar innihalda 40% glýkólsýru (e. glycolic acid) sem er öflug gegn ýmsum húðkvillum. Einnig örvar meðferðin kollagen og elastín ásamt því að framkalla frísklegra yfirbragð og aukinn ljóma.
Cinderella meðferðin er ekki eiginleg lasermeðferð heldur byggir á nær-innrauðu ljósi sem hitar húðina á þægilegan máta og örvar kollagenframleiðslu hennar. Með því verður húðin þéttari og fær á sig meiri ljóma. Þessi meðferð hefur ekki sömu langtímaáhrif og laserlyfting en hún hentar vel fyrir tilefni þar sem mikið stendur til.
Báðar þessar meðferðir taka um 30 mínútur.
Í tilboðinu eru einnig innifalin góð ráðgjöf.
Við hjá Húðinni leggjum áherslu á notalegt andrúmsloft og persónulega þjónustu. Allir fá hitapoka á axlir og einnig er hiti í meðferðarbekk sem gerir alla upplifun mjög þægilega og slakandi.







