Lýsing
Kröftugt andlitskrem sem inniheldur meðal annars ávaxtasýrublöndu sem gerir húðina silkikennda, mjúka og ljómandi. Kremið endurnýjar ysta lag húðar, dregur úr línum og jafnar áferð, minnkar svitaholur og vinnur á mörgum húðvandamálum svo sem bólum, litabreytingum,og rósroða. Bólgueyðandi áhrif og drepur P-acne bakteríuna. Kemur jafnvægi á fitukirtla Hentar fyrir blandaða og þurra húð.
Notkun: Má nota kvöld og morgna. Getur verið gott að byrja að nota einu sinni á dag og auka síðan í tvisvar. Fyrir viðkvæma getur verið gott að nota annan hvern dag.
Innihaldsefni: Glycolic Acid, Salicylic Acid, Azelaic Acid.