Age Intervention Retinol Plus MD andlitskrem

14.760kr.

Kröftugt krem sem inniheldur retinól ásamt peptíðum, andoxunarefnum og rakegefandi efnum til að ná hámarksárangri. Vinnur á fínum línum og hrukkum, sólarskemmdum og gefur húðinni fallega og heilbrigða áferð. Hentar öllum húðgerðum.

 

Flokkur:

Lýsing

Kröftugt krem sem inniheldur retinól, sem örvar kollagen nýmyndun. Önnur virk efni eru peptíð, andoxunarefni og rakagefandi efni sem tryggja hámarksárangur. Vinnur á fínum línum og hrukkum, sólarskemmdum, gefur húðinni fallega og heilbrigða áferð og góðan ljóma. Retinól skipa hlutverk í endurnýjun húðarinnar, viðgerð og hefur yngingaráhrif á frumur. Retinól eru virkasta form Vítamíns A sem hægt er að kaupa án lyfseðils og af mismunandi retinólum þá nýtir húðin best All-trans-retinol sem breytist í húðinni í retinósýru (e. retinoic acid) sem er virkasta form A-vítamíns. Retinol Plus MD inniheldur hæsta hlutfall af all-trans-retinol sem eru leyfileg. Rannsóknir hafa sýnt að retinól dregur úr sýnilegum öldrunareinkennum eins og fínum línum og jafnar áferð húðarinnar.  Hentar öllum húðgerðum

Notkun: getur valdið roða og ertingu. Gott getur verið að byrja að nota kremið 2-3 sinnum í viku og auka smá saman. Má nota kvölds og morgna ef viðkomandi þolir.

Ath. Mikilvægt er að nota sólarvörn samhliða kremi. Ekki ætlað á meðgöngu eða samhliða brjóstagjöf.

Innihaldsefni: All-Trans-Retinol. Peptíð. Green Tea Extract. Chrysin. Bisabolol. NHS. Hyaluronic Acid. Shea Butter.